Skip to content

Day of Immunology

Personal tools
You are here: Home » Partners » Iceland

Iceland

Document Actions

Ónæmisfræðingar berjast fyrir betri heilsu

HIV, inflúensa, ofnæmi, gigtsjúkdómar, krabbamein – þetta eru allt samheiti yfir sjúkdóma sem orsakast af göllum í ónæmiskerfinu, en heilbrigt ónæmiskerfi verndar líkamann gegn sýkingum og æxlisvexti með góðum árangri. Skilningur á ónæmiskerfinu er lykilforsenda þess að hægt sé að þróa viðeigandi meðferðir.

Bólusetningar, eitt mesta afrek læknisfræðinnar, byggja á starfsgetu ónæmiskerfisins. Evrópu stafar ekki lengu ógn af smitsjúkdómum eins og mislingum, hettusótt, rauðum hundum, barnaveiki, stífkrampa og mænusótt. Þar sem ónæmisfræðin er forsenda annara fræðigreina vísinda og læknisfræði er mikilvægi hennar oft vanmetið.

Þess vegna hleypa ónæmisfræðingar af stað átaki til að auka meðvitund þeirra sem taka ákvarðanir í vísindum og stjórnmálum svo og til að auka áhuga almennings um alla Evrópu.

Evrópusamtök ónæmisfræðifélaga, regnhlífarsamtök 28 félaga með yfir 17.000 félagsmenn, hafa stofnað til Dags ónæmisfræðinnar þann 29. apríl, 2005.

Created by bade
Last modified 09.02.2005, 28